Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1951, 150. löggjafarþing 812. mál: atvinnuleysistryggingar (skilvirkari framkvæmd).
Lög nr. 94 7. júlí 2020.
Látið hjá líða að tilkynna um vinnu samhliða atvinnuleysisbótum.
Sá sem hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í fjórar vikur eða lengur og verður uppvís að því að starfa á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a eða að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.
Þingskjal 1951, 150. löggjafarþing 812. mál: atvinnuleysistryggingar (skilvirkari framkvæmd).
Lög nr. 94 7. júlí 2020.
Lög um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006 (skilvirkari framkvæmd).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Orðin „vottorð fyrrverandi vinnuveitanda“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Á eftir orðinu „Fangelsismálastofnun“ í 4. mgr. kemur: lögregla.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 13. gr. laganna:- Á eftir orðunum „er búsettur“ í c-lið kemur: með skráð lögheimili.
- Á eftir orðunum „fyrrverandi vinnuveitanda“ í f-lið kemur: þegar það á við.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr.:
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl.:
- Orðin „vinnuveitanda og“ falla brott.
- Á eftir orðunum „er fram koma í“ kemur: umsókn eða.
- Orðin „sem tilgreint er í vottorði vinnuveitanda skv. 1. mgr.“ í 2. málsl. falla brott.
- Orðin „sbr. b-lið 3. gr.“ í lokamálslið falla brott.
- 3. mgr. fellur brott.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Upplýsingar í tengslum við umsókn um atvinnuleysisbætur.
4. gr.
Á eftir orðunum „er búsettur“ í c-lið 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: með skráð lögheimili.5. gr.
Í stað orðanna „á uppsagnarfresti“ í 1. málsl. 40. gr. laganna kemur: frá uppkvaðningu úrskurðar um að bú félagsins skuli tekið til gjaldþrotaskipta.6. gr.
Orðið „vísvitandi“ í lokamálslið 4. mgr. 57. gr. laganna fellur brott.7. gr.
Á eftir orðunum „sbr. þó 4. mgr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 59. gr. laganna kemur: og 59. gr. a.8. gr.
Á eftir 59. gr. laganna kemur ný grein, 59. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:9. gr.
2. málsl. 60. gr. laganna fellur brott.10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.11. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 2. málsl. 2. mgr. 6. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, með síðari breytingum:- Á eftir orðinu „atvinnutekjur“ kemur: frá uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti og.
- Í stað tilvísunarinnar „b-lið 5. gr.“ kemur: a- og b-lið 5. gr.
Samþykkt á Alþingi 29. júní 2020.